Vonarljós
Langtíma búsetu- og bataúrræði fyrir konur.
Stærsta verkefni okkar og megináhersla um þessar mundir er Vonarljós, langtíma búsetu- og bataúrræði fyrir konur.
Í Vonarljósi viljum við skapa öruggt, fallegt og nærandi heimili þar sem konur fá tíma, stuðning og verkfæri til að byggja líf sitt upp að nýju. Unnið verður út frá heildrænni nálgun þar sem hugað er að anda, sál og líkama og stuðst við viðurkennt efni og áratuga reynslu Adult & Teen Challenge.
Við trúum því að samfélag og heilbrigð tengsl séu mikilvægur hluti bataferlisins. Þess vegna leggjum við áherslu á að konurnar upplifi að þær tilheyri samfélagi þar sem þær fá stuðning í gegnum ferlið og eru jafnframt undirbúnar fyrir lífið að dvöl lokinni.
Markmiðið er ekki aðeins að hjálpa konum að losna úr viðjum fíknar heldur að styðja þær til að byggja upp nýtt líf, endurheimta von og taka aftur virkan þátt í fjölskyldu og samfélagi.


Hjálparhönd
TC Hjálparhönd hófst þegar Agata fór af stað með tösku, kaffi og köku til að hitta heimilislaust fólk á götum borgarinnar. Það sem byrjaði smátt hefur síðan vaxið og í dag er Hjálparhöndin komin á bíl og nær til fjölda fólks sem glímir við heimilisleysi, fíkn og erfiðar félagslegar aðstæður.
Starfið snýst fyrst og fremst um tengsl, traust og að mæta fólki þar sem það er. Agata og hennar teymi aðstoðar fólk við að komast í meðferð, sækir það og keyrir á áfangaheimili, í læknisheimsóknir og önnur úrræði.
Með Hjálparhönd viljum við mæta fólki af virðingu og kærleika, veita hagnýtan og andlegan stuðning og vera brú í átt að bata, samfélagi og nýrri von.
Fangelsisþjónusta
Stuðningur og von fyrir einstaklinga í afplánun.
Fangelsisþjónusta er mikilvægur hluti af starfi TC Ísland.
Þar viljum við ná til einstaklinga á meðan þeir afplána, byggja upp tengsl og miðla þeirri von að breytingar séu mögulegar. Sérstök áhersla er lögð á að styðja einstaklinga sem vilja breyta um stefnu og undirbúa sig fyrir lífið eftir afplánun.
Framtíðarsýn okkar er að mynda enn sterkari brú frá fangelsi yfir í samfélagið og áfram inn í heilbrigt umhverfi þar sem einstaklingurinn fær stuðning til að halda áfram bataferli sínu.

TC skólinn, tjaldið og framtíðarsýn
TC Skólinn
Starf Teen Challenge á Íslandi hófst árið 2020 með TC Skólanum. Þar fengu einstaklingar stuðning og fræðslu í gegnum námsefni Adult & Teen Challenge, með áherslu á bata, persónulegan og andlegan vöxt og uppbyggingu lífsins.
Nú um sinn verður TC Skólinn ekki starfræktur, en framtíðarsýn okkar er að TC Skóla-prógrammið verði síðar hluti af áfangaheimili þar sem einstaklingar fá stuðning, samfélag og markvissa eftirfylgd á leið sinni inn í sjálfstætt líf.
Tjaldið
Sumarið 2025 hófum við Tjaldið, verkefni fyrir konur í viðkvæmri stöðu þar sem þeim var mætt með hlýju, virðingu og stuðningi. Því miður var kveikt í tjaldinu og það eyðilagðist í bruna. Nú söfnum við fyrir nýju tjaldi svo hægt verði að halda starfinu áfram.
%20gl%C3%A6rt.png)