Styðja starfið
Með þínum stuðningi getum við mætt fólki í vonleysi með von og hjálp. Sérhvert framlag skiptir máli í starfi okkar.
Kt. 520620-0520
Rkn. 0301-13-400122
Teen Challenge Ísland leggur metnað sinn í að veita einstaklingum sem glíma við vímuefnavanda og aðra erfiðleika nýtt upphaf. Starf okkar byggir á kærleika og stuðningi þar sem við mætum hverjum og einum á þeirra forsendum. Fjárhagslegur stuðningur frá fólki eins og þér er undirstaða þess að við getum haldið áfram að bjóða upp á þjónustu sem breytir lífum og færir fjölskyldum von á ný. Þinn stuðningur gerir þetta mögulegt.
Áhrif stuðnings
“
Nýtt upphaf
Ég kom mjög reiður inn í TC og átti mjög erfitt með samskipti við annað fólk og hafði aldrei náð að fóta mig í lífinu. Í TC fékk ég lausn og námsefnið hjálpaði mér í að breyta viðhorfum mínum, fylgja yfirvaldi og lifa í friði við annað fólk. TC var stökkpallurinn minn út í lífið og án TC ætti ég ekki það góða líf sem ég hef í dag.
“
Eignast von
Að fara í gegnum TC skólann svaraði spurningum um kristna trú, mannleg samskipti og hver ég var sem manneskja. Hvert námskeið færði mér nær þeirri manneskju sem Jesú ætlaði mér að vera. TC gaf mér kærleika, aga, fróðleik og dýpri skilning.
“
Leiðin út úr fíkni
Ég skráði mig í TC skólann eftir meðferð. Ég styrktist mikið félagslega eftir að hafa verið í mikilli einangrun. Ég byrjaði að taka ábyrgð á lífinu mínu, vakna á morgnanna, mæta á réttum tíma og sinna náminu. Ég eignaðist trú á Guð og ég tók eftir algjörri viðhorfsbreytingu til lífsins og vonin kviknaði á ný um að ég geti eignast gott og fallegt líf,
%20gl%C3%A6rt.png)